BSc í tölvunarfræði

Tölvunarfræðideild er í virku alþjóðlegu samstarfi, bæði í kennslu og rannsóknum. Jafnframt vinnur deildin náið með atvinnulífinu, t.d. í formi lokaverkefna. Útskrifaðir nemendur í tölvunarfræði hafa því mjög góðan undirbúning hvort heldur sem þeir fara beint út á vinnumarkaðinn eða huga að framhaldsnámi hérlendis eða erlendis.

 

Tölvunarfræðingar eiga kost á mjög fjölbreytilegum störfum, enda skarast tölvunarfræði við margar greinar, s.s. stærðfræði, sálfræði, verkfræði, lífupplýsingafræði, viðskiptafræði o.fl. Tölvunarfræðingar vinna því gjarnan með fólki sem hefur aðra grein að sérsviði.

 

Mikil eftirspurn er eftir tölvunarfræðimenntuðu fólki. Þekking og kunnátta í upplýsingatækni og stærðfræði er undirstaða efnahagslegra framfara og samkeppnishæfni þjóða. Markmið deildarinnar er bjóða nemendum upp á traust fagnám á þessum sviðum.

 

Skipulag náms

 


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli

 


Intranet


Leturstærð


Aukaefni


Prenta


Tungumál


Leit