BSc í hugbúnaðarverkfræði
Hugbúnaðarkerfi eru á meðal stærstu og tæknilega flóknustu kerfa sem smíðuð eru, sér í lagi kerfi þar sem gerðar eru miklar kröfur um áreiðanleika. Markmið náms í hugbúnaðarverkfræði er að mennta lykilstarfsmenn sem koma til með að beita verkfræðilegum aðferðum við hönnun og smíði slíkra kerfa.
Hugbúnaðarverkfræðinám gefur nemendum bæði sterkan verkfræðilegan grunn og hagnýta þjálfun í aðferðum og vinnubrögðum. Grunnurinn byggist á menntun í tölvunarfræði, stærðfræði og undirstöðugreinum verkfræði. Hagnýt þjálfun byggist á nýjustu aðferðum hugbúnaðarfræði, verkefnastjórnunar og gæðastýringar, ásamt raunhæfum hugbúnaðarverkefnum sem unnin eru í samvinnu við atvinnulífið.
Mikil eftirspurn er eftir verkfræðimenntuðu fólki og sérstaklega á þeim sviðum er tengjast upplýsinga- og hátækniiðnaði framtíðarinnar. Nám í hugbúnaðarverkfræði við Háskólann í Reykjavík er góður undirbúningur fyrir þátttöku í atvinnulífinu og traust undirstaða fyrir framhaldsnám hérlendis og erlendis.
Námið veitir sterkan grunn í tölvunarfræði, stærðfræði og undirstöðugreinum verkfræði. Jafnframt er lögð áhersla á verkefnastjórnun og gæðastjórnun.
Starfsnám í Bandaríkjunum
Nemendur í BSc í hugbúnaðarverkfræði hafa möguleika á að sækja um að fara til Bandaríkjuna í starfsnám við Háskólinn í Maryland (Frauenhofer Center for Experimental Software Engineering og fengið metið þessa vinna sem einingar. Við Fraenhofer eru stundaðar öflugar rannsóknir í nánu samstarfi við stofnanir á borð við NASA og FDA og fá nemendur að taka þátt í þeirri vinnu. Nemendur fái borgað laun á meðan á starfsnáminu stendur en algengast er að nemendur fari í sex mánuði i senn. Frekari upplýsingar má nálgast hér.
Skipulag náms