Frumkvöðlasjóður Guðfinnu S. Bjarnadóttur
|
|
Frumkvöðlasjóður dr. Guðfinnu Bjarnadóttur fyrrverandi rektors var stofnaður 3. maí 2007. Að stofnun þessa sjóðs standa Bakkavör Group, Viðskiptaráð Íslands og Háskólinn í Reykjavík og er honum ætlað að verðlauna þá nemendur Háskólans í Reykjavík sem leggja fram bestu viðskiptaáætlun í verkefnum innan skólans á ári hverju. Sjóðurinn ber nafn Guðfinnu Bjarnadóttur, fyrrverandi rektors Háskólans í Reykjavík, vegna framlags hennar til frumkvöðlamenntunar innan HR. Bakkavör leggur 5 milljónir króna í stofnfé þessa sjóðs. Veitt verður úr sjóðnum í þriðja sinn árið 2009. Umsóknarfestur er til 1. júní 2009. Í dómnefnd eru dr. Svafa Grönfeldt rektor HR, Finnur Oddsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands og Hildur Árnadóttir stjórnarmaður í Bakkavör. Verðlaunin eru kr. 400.000.
| ||
Fyrirkomulag styrkveitingaFyrirkomulag styrkveitinga úr sjóðnum er með þeim hætti að bestu viðskiptaáætlanirnar úr Nýsköpun og stofnun fyrirtækja (sem er skyldunámskeið fyrir laganema, verkfræðinema og viðskiptafræðinema) á vorönn og sumarönn ár hvert og úr námskeiðinu Rekstur, stjórnun og nýsköpun (sem er skyldunámskeið fyrir tæknifræðinema á haustönn ár hvert) eru sjálfkrafa þátttakendur í verðlaunasamkeppninni. Einnig er öllum nemendum HR frjálst að senda inn viðskiptaáætlanir, og er skilafrestur í þeim tilvikum 1. júní. Kennarar námskeiðanna velja úr þessum hópi þrjár til fimm áætlanir sem komast í úrslit í keppninni, og dómnefnd velur síðan þá sem hlýtur verðlaunin. Aðeins áætlanir sem ekki eru trúnaðarmál vegna samstarfsaðila eru teknar með í keppnina.
Upplýsingar um styrkinn veita starfsmenn stúdentaþjónustunnar Gréta Matthíasdóttir, Heimir Haraldsson og Sigríður Hulda Jónsdóttir. Guðfinna S. Bjarnadóttir kom með nýja sýn inn í íslenskt háskólaumhverfi þegar hún tók við starfi rektors Háskólans í Reykjavík árið 1998. Það er trú stjórnenda Háskólans í Reykjavík að mannauðurinn sé mesta auðlind landsins, þannig hefur hugsunin verið frá fyrstu tíð. Til stuðnings frumkvæði og sköpunarkraftinum sem býr í hverjum einstakling þá hefur nýsköpun verið eitt af aðalsmerkjum skólans. Frumkvöðlafræðsla í HRHáskólinn í Reykjavík byggir m.a. á þeirri hugmyndafræði að í öllu starfi sé gott að klífa á axlir þeirra sem náð hafa frábærum árangri. Þegar undirbúningur að frumkvöðlafræðslu og rannsóknum hófst á fyrsta starfsári skólans þá var kannað hvar í heiminum væri best staðið að slíkum málum, svarið þurfti ekki endilega að vera rétt, heldur gott, og það fékkst, svarið var Írland. Í kjölfarið fékk skólinn til liðs við sig tvo Íra, Les McKewn og Will McKee sem báðir höfðu helgað sig frumkvöðlakennslu á Írlandi um árabil og náð miklum árangri. Byggt á reynslu þeirra og þekkingu víðar að voru mótuð frumkvöðlanámskeið sem síðan hafa þróast með HR og voru m.a. mikilvægur þáttur í verkefninu Auður í krafti kvenna. Sem dæmi um verkefnamiðuð frumkvöðlanámskeið eru kennd eru í HR, má nefna þriggja vikna þverfaglegt frumkvöðlaverkefni sem fyrsta árs nemar í viðskiptafræði, lögfræði og verkfræði vinna saman í lok vorannar. Verkefnið gengur út á stofnun fyrirtækja, nemendur þróa viðskiptahugmynd og undirbúa framkvæmd hennar að öllu leyti eins og um alvöru fyrirtæki væri að ræða. Fulltrúar úr atvinnulífinu meta síðan afraksturinn. Þessi reynsla nemendanna skilar sér vel og nokkur fyrirtæki hafa verið stofnuð í kjölfarið. Einnig eru í boði frumkvöðlanámskeið á síðari námsárum. Rannsóknir í frumkvöðlafræði hafa verið stundaðar við skólann og er þar þekktust GEM (Global Entrepreneurship Monitor) rannsóknin sem framkvæmd hefur verið árlega síðan 2001.
| |||