Heilbrigðisverkfræði
Heilbrigðisverkfræði er nýleg grein verkfræðinnar. Aðferðum verkfræðinnar er beitt á eða í mannslíkamanum til að leysa mismunandi vandamál tilkomin vegna veikinda eða slysa, eða einfaldlega til að bæta lífsgæði og öryggi okkar allra. Þannig er þekking á mannslíkamanum samþætt verkfræðilegum aðferðum í þverfaglegu námi. Oft er það svo, að heilbrigðisverkfræðingar vinna í teymum ólíkra sérfræðinga við þróun aðferða, búnaðar eða notkun þeirra á vettvangi fyrirtæka eða heilbrigðisþjónustunnar.
Undirstöðugreinar heilbrigðisverkfræðinnar eru stærðfræði, eðlisfræði og lífeðlisfræði, og einmitt lífeðlisfræðin og starfsemi mannslíkamans setur heilbrigðisverkfræðina í nokkra sérstöðu miðað við aðrar verkfræðigreinar.
Ögrandi, spennandi og fjölþætt eru viðfangsefni heilbrigðisverkfræðinga. Sem dæmi má nefna hönnun gervilima, ígræðanlegra hjartastuðgjafa, mæling ólíkra lífmerkja, þróun tækja til notkunar á skurðstofum, notkun raförvunar við endurhæfingu vöðva þverlamaðra einstaklinga, gerð tölvulíkana til að meta burðarþol beina o.m.m.fl. Þróun tækja og tækni byggir iðulega á nýjustu niðurstöðum rannsókna vísindanna úr ýmsum greinum heilbrigðis- og raunvísinda. Einnig hafa heilbrigðisverkfræðingar verið eftirsóttir í stjórnun fyrirtækja og sjúkrahúsa.
Sviðskjarni - Heilbrigðisverkfræði (60 ECTS)
|
|
|
|
Valfög - Heilbrigðisverkfræði (60 ECTS - 8 fög stýrt val og 2 fög frjálst val)
Gerð er krafa um eitt þverfaglegt verkefni (t.d. um nýsköpun og stofnun fyrirtækja) og tvö fög úr sviðskjarna fjármála- eða rekstrarverkfræði.
Dæmi um fagtengd valfög:
|
|
|
|
Auk þess geta nemendur valið allt að fjögur fög úr öðrum deildum og tvö fög úr meistaranámi í verkfræði.
Birt með fyrirvara
Kjarni (60 ECTS)