VIÐSKIPTADEILD

VERTU FRAMÚRSKARANDI

Markmið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík (HR) er að vera fyrsta val þeirra sem velja sér að læra viðskiptafræði á Íslandi.
Til að tryggja þetta höfum við eftirfarandi að leiðarljósi:
• Að nám í viðskiptafræði við HR einkennist af framúrskarandi kennslu. 
• Að námið sé í stöðugri þróun og í sterkum tengslum við atvinnulífið.
• Við sýnum í verki að hver einasti nemandi í HR skiptir máli.

Markmið viðskiptadeildar HR er einnig að vera fyrsta val fyrirtækja og stofnana sem vilja ráða viðskiptafræðinga til starfa.
Til þess að tryggja þetta höfum við eftirfarandi að leiðarljósi:
• Að viðskiptafræðingar frá HR séu framúrskarandi vel að sér á helstu sviðum viðskiptafræðinnar en kunni einnig að tileinka sér nýja hluti.
• Að viðskiptafræðingar frá HR séu vanir að vinna í hópi og eigi auðvelt með að aðlagast ólíku samstarfsfólki.
• Að viðskiptafræðingar frá HR geti unnið sjálfstætt sem einstaklingar og séu því öflugir liðsmenn á sínum vinnustöðum strax frá fyrsta degi.

BSc NÁM

BSc nám í viðskiptafræði við viðskiptadeild HR er fjölbreytt og krefjandi nám sem býr nemendur undir margskonar áskoranir að námi loknu, hvort sem ætlunin er að axla ábyrgð í atvinnulífinu eða halda áfram í frekara námi.

 

Á fyrstu tveimur árunum fá nemendur trausta undirstöðu í lykilþáttum viðskipta. Á 3. ári gefst nemendum gefst kostur á að velja ýmis sérsvið viðskiptafræðinnar s.s. fjármál, stjórnun, hagfræði, markaðsfræði, rekstrarstjórnun, alþjóðaviðskipti og tungumál.

Meira um grunnnám

MSc NÁM

Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík leggur mikla áherslu á að námið standist bæði alþjóðlegar kröfur og taki mið af þörfum atvinnulífsins.  Í sívaxandi samkeppni og alþjóðavæðingu verða kröfur fyrirtækja um framúrskarandi fólk með sterka faglega og fræðilega undirstöðu sífellt meiri.  Meistaranám við viðskiptadeild HR hentar þeim sem vilja ná forskoti í samkeppni með prófgráðu sem stenst alþjóðleg viðmið.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli

 


Intranet


Leturstærð


Aukaefni


Prenta


Tungumál


Leit